Ársreikningur 2023

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2023. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 379 milljarðar króna og hækkaði um u.þ.b. 30 milljarða króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun eigna sjóðsins á árinu 2023 nam 6,2% en vegna mikillar verðbólgu mældist raunávöxtun sjóðsins neikvæð um 1,7%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 3,1%.

Greiddir voru um 10,7 milljarður króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins til um 12.500 lífeyrisþega. Voru þetta um 17,8% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 4,4%.

Alls greiddu tæplega 23.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.800 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 17,7 milljörðum króna og hækkuðu um 12% á milli ára. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 16.200.

Hrein eign séreignardeildar var 8.418 milljónir króna og hækkaði um 8,9% frá fyrra ári. Séreignardeildin býður upp þrjú ávöxtunarsöfn, Innlána safnið, Varfærna safnið og Áræðna safnið og nam hrein raunávöxtun safnanna 0,1%, 0,6% og -1,7% á árinu. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 777 milljónum króna í lok árs.

Ársreikninginn í heild sinni má finna hér.