Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 2017

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 3. maí n.k. í Skjólbrekku í Mývatnssveit, fundurinn hefst kl. 13:00.

Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf.

Gögn vegna ársfundar verða aðgengileg á heimasíðu sjóðsins, www.stapi.is, a.m.k. tveimur vikum fyrir ársfund.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.