Ársfundur sjóðsins

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 8 maí nk. í Menningarhúsinu Hofi kl. 14:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Breytingar á samþykktum
  5. Starfskjarastefna
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning löggilts endurskoðanda
  8. Ákvörðun um laun stjórnar
  9. Önnur mál

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.

Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í vefútsendingu á heimasíðu sjóðsins.

Önnur gögn má finna hér:
Ársreikningur Stapa 2018
Ársskýrsla Stapa 2018