Árni Rúnar Magnússon ráðinn sjóðstjóri hjá Stapa

Árni Rúnar Magnússon er löggiltur verðbréfamiðlari, með BS próf í rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri og masters próf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands.  Lengst af starfsferils síns hefur Árni starfað hjá Landsbankanum, m.a. sem útibússtjóri, í áhættustýringu og við sértæk lánamál. Hann mun hefja störf í desember.

Stjórn og starfsfólk Stapa lífeyrissjóðs býður Árna velkominn til starfa.