Anna Lilja Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri Stapa

Anna Lilja er með BS próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað hjá Stapa lífeyrissjóði frá árinu 2014. 

Áður starfaði Anna Lilja hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins í átta ár og þar á undan m.a. hjá Sparisjóðabanka Íslands, Línu.net og Landsbanka Íslands.

Anna Lilja mun taka við nýju starfi í janúar nk. og tekur þá við af Guðmundi Baldvin Guðmundssyni sem ákveðið hefur að hverfa til annarra starfa. Guðmundur Baldvin hefur verið skrifstofustjóri hjá Stapa síðustu 11 ár, honum eru þökkuð góð störf í þágu sjóðsins og óskað alls hins besta á nýjum vettvangi.