Áfram lokað en hægt að bóka tíma fyrir heimsóknir

Skrifstofa Stapa verður áfram lokuð en starfsmenn taka nú á móti sjóðfélögum í fyrirfram bókaða tíma. Til að bóka tíma þarf að hafa samband í síma 460-4500 eða með tölvupósti á stapi@stapi.is. Áfram er hægt að skila inn gögnum í afgreiðslu.

Við gætum þess að fara eftir neðangreindum leiðbeiningum:

  • Vera með andlitsgrímu.
  • Virða 2ja metra regluna. 
  • Sinna handþvotti og spritta hendur þegar inn er komið.
  • Þeir sem finna fyrir einkennum Covid-19, hafa verið erlendis síðustu 14 daga, bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku eða eru í einangrun eða sóttkví vegna veirunnar eru beðnir um að koma ekki á skrifstofur okkar.

Við hvetjum ennfremur til þess að þeir sem eiga erindi við sjóðinn nýti áfram neðangreindar þjónustuleiðir:

  • Sjóðfélagavefur
    Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl.

  • Launagreiðendavefur
    Launagreiðendur finna allar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins á launagreiðendavef.

  • Umsóknir
    Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Hægt er að skila inn öllum umsóknum nema vegna sjóðfélagalána með rafrænum skilríkum. Umsóknum vegna sjóðfélagalána og önnur gögn þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið lan@stapi.is. Gögn til undirritunar sendir sjóðurinn í ábyrgðarpósti.

  • Símaþjónusta og tölvupóstur
    Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500