03.03.2009
Stjórn Stapa lífeyrissjóðs ákvað að lækka dráttarvexti af iðgjaldaskuldum við sjóðinn tímabundið, á fundi sínum 19. desember sl.
Lesa meira
02.03.2009
Ávöxtun Séreignardeildar sjóðsins gekk mjög vel á árinu og er það fagnaðarefni. Sjóðurinn býður upp á
þrjár mismunandi ávöxtunarleiðir, Safni I, Safn II og Safn III. Ávöxtun þessara safna var 27,3%, 27,7% og 24,9% ár árinu 2008 og
raunávöxtun þeirra var 9,4%, 9,7% og 7,3%.
Lesa meira
23.02.2009
Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2008. Samkvæmd niðurstöðu
ársreikningsins var ávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins jákvæð um 0,2% á árinu 2008. Raunávöxtun var hins vegar
neikvæð um 13,9%.
Lesa meira
10.02.2009
Þrátt fyrir umræðu um slæma stöðu lífeyrissjóðanna að undanförnu þá telur Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri sjóðsins að ekki komi til skerðingar hjá Stapa.
Lesa meira
08.01.2009
Á síðasta stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs samþykktu stjórnarmenn samhljóða að lækka stjórnarlaun sjóðsins um 10% frá 1. janúar 2009.
Lesa meira
19.12.2008
Stjórn Stapa ákvað á stjórnarfundi að lækka tímabundið dráttarvexti af iðgjaldakröfum til sjóðsins.
Dráttarvextir af iðgjaldakröfum verða því einungis 10% frá 1. október sl. (þegar bankahrunið varð) til 28. febrúar 2009 vegna
uppgjöra sem gerð eru á þessu tímabili. Þeir sem ekki gera upp vanskil á þessu tímabili munu hins vegar greiða þá almennu
dráttarvexti sem í gildi eru. Almennir dráttarvextir eru nú 26,5% en munu lækka í 25% þann 1. janúar n.k.
Lesa meira
19.12.2008
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána í 4,2% frá 1.
janúar n.k., en áður höfðu þeir verið lækkaðir úr 5,7% í 5,2% 1. desember sl. Jafnframt var ákveðið að setja
hámark á ný lán sjóðfélaga, 10 milljónir kr, en áður ákvarðaðist hámarkið eingöngu af veðhæfi
fasteignar.
Lesa meira
18.12.2008
Á sjóðfélagayfirlitinu sem verið er að senda út kemur fram nýr veflykill fyrir sjóðfélagavef. Vefurinn hefur verið
uppfærður og hvetjum við sjóðfélaga til nýta sér hann, bæði til að fylgjast með því að iðgjöldum þeirra
sé skilað reglulega, og eins til að skoða áunnin réttindi og lífeyrisgreiðslur.
Lesa meira
20.11.2008
Á nýja launagreiðendavefnum er hægt að ganga
frá skilagreinum vegna lífeyrisiðgjalda á skjótvirkan og auðveldan og þá er hægt að fá góða yfirsýn á skilum
og greiðslum iðgjalda.
Lesa meira
03.11.2008
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána úr 5,7% í 5,2% frá
1. desember n.k.
Lesa meira