Sjóðfélagayfirlit

Meginreglan er rafræn birting yfirlita á sjóðfélagavef og í rafrænu pósthófli á Ísland.is.

Á sjóðfélagavef er alltaf hægt að fylgjast með greiddum iðgjöldum, áunnum réttindum og skoða áður útsend sjóðfélagayfirlit.

    • Stapi birtir yfirlitin tvisvar á ári, að vori og hausti.
    • Ef sjóðfélagi er með skráð netfang í Mínar upplýsingar á sjóðfélagavef sendir Stapi tölvupóst til áminningar í hvert sinn sem nýtt yfirlit er sett á vefinn.
    • Sjóðfélagi sem óskar eftir að fá yfirlit í bréfapósti getur skráð það undir Mínar upplýsingar á sjóðfélagavef eða haft samband við Stapa.

Stapi minnir á mikilvægi þess að bera saman launaseðla og iðgjaldagreiðslur sem koma fram á sjóðfélagayfirliti. Mikilvægt er að hafa samband við sjóðinn ef iðgjöld vantar frá launagreiðanda. Réttindasjóður byggir á þeim greiðslum sem skila sér til sjóðsins.

Sjóðfélagar sem skrá netfang sitt á sjóðfélagavef fá eftir það sendar í tölvupósti þær upplýsingar sem sjóðurinn telur nauðsynlegt að koma á framfæri við sjóðfélaga. Þetta geta verið tilkynningar um sjóðfélagayfirlit, fréttabréf o.fl. Stapi nýtir uppgefið netfang ekki í öðrum tilgangi en að framan greinir og deilir upplýsingum um netfangið ekki með þriðja aðila.