STAPI, lífeyrissjóður

Stapi lífeyrissjóður sér um rekstur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar í samræmi við samning milli sjóðanna þar um.

Safn II

Markmið safnsins er að hámarka ávöxtun með lengri tíma litið og er gert ráð fyrir að við venjulegar aðstæður sé alltaf nokkur hluti safnsins í áhættusamari eignum. Safn II hefur meiri heimildir til fjárfestinga í áhættusamari eignum en Safn I og því má búast við nokkuð meiri sveiflum í ávöxtun.  Safnið er samsett úr skuldabréfum og hlutabréfum og hefur einnig heimildir til að fjárfesta í marksjóðum.

Safninu er stýrt með virkum hætti og er stefnt að því að hámarka ávöxtun með því að flytja eignir milli eignaflokka í samræmi við vænta ávöxtun, enda sé áhætta innan leyfilegra marka safnsins.

Safnið er að stærstum hluta fjárfest í markaðsverðbréfum, þ.m.t. skuldabréfum með langan líftíma og hlutabréfum sem sveiflast í verði. Því má gera ráð fyrir nokkrum sveiflum í markaðsverði eignanna frá einum tíma til annars, en almennt er stefnt að sveiflur í safninu séu á bilinu 7-14% (mánaðarlegt staðalfrávik ávöxtunar).

Safnið hefur ríflegar heimildir til að fjárfesta til að hafa hátt hlutfall innlána eða skammtímabréfa. Sá möguleiki yrði fyrst og fremst nýttur til að verjast mögulegu tapi, einkum ef mikil óvissa skapaðist á hefðbundnum verðbréfamörkuðum. Þá eru einnig ríkar heimildir til að hafa hátt hlutfall skuldabréfa í safninu, sem einkum verða nýttar þegar ástand áhættusamari markaða er talið ótryggt að mati sjóðsstjóra. Við eðlilegar aðstæður er alltaf talsverður hluti safnsins fjárfestur í áhættusamari eignum með það að markmiði að ná sem bestri ávöxtun. Þó er kappkostað að safnið hafi ávallt nægjanlegt laust fé eða vel seljanlegar eignir til að geta brugðist við útgreiðslum bæði vegna lífeyrisgreiðslna, flutnings eða sérstakra úttekta.

Eingöngu skal fjárfest í skráðum verðbréfum.

Vikmörk vegna fjárfestinga:


Samsetning safnsins um síðustu mánaðamót er sýnd á myndinni hér fyrir neðan.

Last updated: 31.01.2012

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf