STAPI, lífeyrissjóður
Lífeyrisréttindi og lífeyrisgreiðslur í séreignardeild
29.
Lífeyrisréttindi
29.1
Við framlag í séreignardeild skulu réttindi hvers og eins myndast
X. kafli
Lífeyrisréttindi og lífeyrisgreiðslur í séreignardeild
| 29. |
Lífeyrisréttindi |
| |
29.1 |
Við framlag í séreignardeild skulu réttindi hvers og eins myndast í samræmi við greiðslur hans. Lífeyrisréttindi
miðast við innborguð iðgjöld og ávöxtun þeirra. Réttindi vegna greiðslna miðast við greiðsludag. |
| |
29.2 |
Færður skal sérreikningur fyrir iðgjald hvers rétthafa í séreignardeild. Heimilt er að bjóða upp á mismunandi
verðbréfasöfn, sem rétthafar geta valið á milli. Sé boðið upp á mismunandi verðbréfasöfn, skal tilgreina það safn,
sem valið er á samningi rétthafa um séreignarsparnað. Stjórn sjóðsins skal móta fjárfestingarstefnu fyrir þau söfn, sem
sjóðurinn býður og skal hún vera innan þeirra marka, sem ákveðin eru í 6. grein. Auk iðgjalds rétthafa skal færa á
sérreikning hans vexti í samræmi við ávöxtun þess safns sem hann hefur valið að frádregnum kostnaði við umsýslu og rekstur
deildarinnar. |
| |
29.3 |
Lífeyrissjóðnum er heimilt að fenginni skriflegri beiðni viðkomandi sjóðfélaga að draga frá inngreiddum iðgjöldum
hans upphæð, sem svarar til iðgjalds vegna líf-og heilsutryggingar. Sjóðurinn skal eiga aðild að samningi um kaup á slíkum tryggingum.
Bætur skv. slíkum tryggingum skulu greiddar inn á séreignarreikning viðkomandi rétthafa. Um útborgun gilda ákvæði II. kafla laga nr.
129/1997.
|
| 30. |
Lífeyrisgreiðslur |
| |
30.1 |
Hefja má úttekt á innistæðu eða gera sérstakan útborgunarsamning tveimur árum eftir fyrstu greiðslu iðgjalds til
öflunar lífeyrisréttinda í séreign, en þó aldrei fyrr en rétthafi hefur fullnægt sérstökum viðbótarskilyrðum skv.
greinum 30.2, 30.3 eða 30.4. |
| |
30.2 |
Rétthafi, sem orðinn er fullra 60 ára á rétt á að fá inneign sína greidda út.
|
| |
30.3 |
Verði rétthafi fyrir orkutapi sem metið er 100%, á hann rétt á að fá inneign sína greidda út með jöfnum
greiðslum á eigi skemmri tíma en 7 árum eða þeim tíma sem vantar uppá að 60 ára aldur. Nú er örorka metinn lægri en 100%
og lækkar þá árleg útborgun í hlutfalli við lækkun örorkuprósentu og úttektartíminn lengist samsvarandi. |
| |
30.4 |
Við andlát rétthafa, fellur inneign hans í séreignardeildinni til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga.
|
| |
|
|
| |
|
|
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...