STAPI, lífeyrissjóður
Tryggingafræðilegar athuganir
26.
Tryggingafræðileg athugun
26.1
Stjórn lífeyrissjóðsins skal árlega láta reikna út fjárhag sjóðsins og skal
VIII. kafli
Tryggingafræðilegar athuganir
| 26. |
Tryggingafræðileg athugun |
| |
26.1 |
Stjórn lífeyrissjóðsins skal árlega láta reikna út fjárhag sjóðsins og skal niðurstaða athugunarinnar vera
hluti af reikningsskilum lífeyrissjóðsins um hver áramót. Í niðurstöðu tryggingafræðilegrar athugunar skal gera grein fyrir kostnaði
vegna þeirra lágmarksréttinda sem sjóðurinn er skuldbundinn að veita, sbr. ákvæði greinar 2.3. Einnig skal gerð grein fyrir kostnaði vegna
þeirra viðbótarréttinda, sem sjóðurinn kann að veita umfram ofangreint lágmark. Athugun skal framkvæmd af tryggingafræðingi eða
öðrum þeim sem hlotið hafa viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins til slíks starfs. Fyrir 1. júlí ár hvert skal senda
Fjármálaeftirlitinu hina tryggingafræðilegu athugun. |
| |
26.2 |
Hrein eign lífeyrissjóðsins til greiðslu lífeyris ásamt núvirði framtíðariðgjalda skal vera jafnhá
núvirði væntanlegs lífeyris vegna þegar greiddra iðgjalda og framtíðariðgjalda. Áætlun um framtíðariðgjöld og
væntanlegan lífeyri skal miðuð við sjóðfélaga á þeim tíma sem tryggingafræðileg athugun tekur mið af.
Lífeyrisloforð sjóðsins til framtíðar skulu árlega endurskoðuð og breytt ef tryggingafræðilegar forsendur sjóðsins gefa tilefni
til sbr. ákvæði greina 17.1., en um breytingar á áunnum réttindum fer eftir ákvæðum gr. 27.3. og 27.4. |
| |
26.3 |
Leiði tryggingafræðileg athugun í ljós að eignir sjóðsins eru meira en 10% umfram lífeyrisskuldbindingar hans, miðað við
viðurkenndar tryggingafræðilegar forsendur og að teknu tilliti til eðlilegra varúðarsjónarmiða, skal stjórn sjóðsins, að
höfðu samráði við tryggingafræðing, gera tillögur til ársfundar um hækkun lífeyrisréttinda. Sama gildir ef þessi munur hefur
haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár. Stjórn sjóðsins er einnig heimilt, að höfðu samráði við tryggingafræðing
sjóðsins og miðað við viðurkenndar tryggingafræðilegar forsendur og að teknu tilliti til eðlilegra varúðarsjónarmiða, að auka
áunnin lífeyris réttindi sjóðfélaga. Aukningin skal gerð þannig að áunnin réttindi allra sjóðfélaga, eins og
þau eru reiknuð skv. 18.?21. gr. þessara samþykkta, eru aukin hlutfallslega jafn mikið. Staða sjóðsins, það er mismunur eigna og skuldbindinga
samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt, skal þó ætíð vera jákvæð eftir aukningu réttinda, bæði þegar
litið er til áunninna réttinda og heildarréttinda. |
| |
26.4 |
Leiði tryggingafræðileg athugun í ljós, að eignir sjóðsins eru meira en 10% lægri en lífeyrisskuldbindingar hans,
miðað við viðurkenndar tryggingafræðilegar forsendur og að teknu tilliti til eðlilegra varúðarsjónarmiða, skal stjórn
sjóðsins, að höfðu samráði við tryggingafræðing, gera tillögur til ársfundar um lækkun lífeyrisréttinda, enda finnist
ekki aðrar leiðir til að bæta fjárhag sjóðsins. Sama gildir ef þessi munur hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár. Stjórn
sjóðsins er einnig heimilt, að höfðu samráði við tryggingafræðing sjóðsins og miðað við viðurkenndar
tryggingafræðilegar forsendur og að teknu tilliti til eðlilegra varúðarsjónarmiða, að lækka áunnin lífeyrisréttindi
sjóðfélaga. Lækkunin skal gerð með því að skerða áunnin réttindi allra sjóðfélaga, eins og þau eru
reiknuð skv. 18.-21. gr. þessara samþykkta, hlutfallslega jafnmikið. |
| |
26.5 |
Nú leiðir tryggingafræðileg athugun í ljós, að fjárhagur sjóðsins er svo ótryggur að við svo búið
má ekki standa og ætla má, miðað við tryggingafræðilegar forsendur, að eignir hans muni ekki duga fyrir skuldbindingum miðað við þau
lágmarksréttindi, sem sjóðnum er skylt að veita, sbr. grein 2.3. og skal stjórn sjóðsins þá boða til aukaársfundar eins
fljótt og verða má og eigi síðar en innan sex mánaða frá því að hin tryggingafræðilega niðurstaða lá fyrir.
Á fundinum skal stjórn sjóðsins leggja fram tillögur um sameiningu við annan samtryggingarsjóð eða lokun sjóðsins. Jafnframt skal
stjórn sjóðsins leggja fram tillögur um hjá hvaða lífeyrissjóði tryggja beri sjóðfélögum lífeyrisrétt.
Tillögurnar skal afgreiða með sama hætti og tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. |
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...