STAPI, lífeyrissjóður

Áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Norðurlands voru hækkuð um 2,75% með samþykkt stjórnar sjóðsins þann 9. mars 2007. Hækkunin var gerð til að

Viðauki B

Áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Norðurlands voru hækkuð um 2,75% með samþykkt stjórnar sjóðsins þann 9. mars 2007. Hækkunin var gerð til að samræma réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Norðurlands og Lífeyrissjóðs Austurlands vegna sameiningar sjóðanna.

Eftir ársfund 2010 var réttindaávinnslutafla skv. Viðauka A - Tafla I - lækkuð um 1,403%. Breytingin tók gildi frá 1. maí 2010.

Eftir ársfund 2011 voru gerðar eftirfarandi breytingar á réttindum:

  • Áunnin réttindi voru lækkuð um 6%. Miðað var við réttindi, vegna iðgjalda ársins 2010 og eldri.
  • Framtíðarréttindi voru lækkuð þannig að framtíðareignir og skuldbindingar stóðust á , sem nam lækkun um 7,9% af skuldbindingum. Framtíðar framlag til jöfnunar á örorkubyrði var núvirt, sem hækkaði framtíðaeignir um 6%. Sama hækkun var gerð á framtíðarréttindum. Ofangreindar aðgerðir jafngilda 2,5% lækkun framtíðarskuldbindinga mv. stöðuna eins og hún var fyrir aðgerðir.
  • Ofangreindar breytingar skulu taka gildi frá upphafi næsta mánaðar eftir að samþykktirnar hafa verði staðfestar af Fjármálaráðuneyti.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf