STAPI, lífeyrissjóður
Hlutverk, aðild og sjóðfélagar
14.
Hlutverk
14.1
Tryggingadeild sjóðsins veitir lágmarkstryggingavernd í samræmi við ákvæði laga um skyldutryggingu
V. kafli
Hlutverk, aðild og sjóðfélagar
| 14. |
Hlutverk |
| |
14.1 |
Tryggingadeild sjóðsins veitir lágmarkstryggingavernd í samræmi við ákvæði laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og kjarasamninga, eins og nánar er kveðið á um í samþykktum þessum. |
| 15. |
Aðild og sjóðfélagar |
| |
15.1 |
Sjóðfélagar í tryggingadeild sjóðsins skulu vera, allir þeir launamenn, sem náð hafa 16 ára aldri fyrir lok næsta
almanaksmánaðar á undan og starfa í starfsgrein þar sem kjarasamningar aðildarfélaga sjóðsins skv. greinum 3.2 og 3.3 ákvarða
lágmarkskjör, sbr. ákvæði 2. gr. laga nr. 129/1997. |
| |
15.2 |
Heimilt er launamanni að gerast sjóðfélagi, enda þótt hann starfi ekki í starfsgrein þar sem kjarasamningar aðildarfélaga
sjóðsins ákvarða lágmarkskjör, enda sé honum ekki skylt að vera í öðrum lífeyrissjóði. Óheimilt er að neita
manni um aðild að lífeyrissjóðnum á grundvelli heilsufars hans, aldurs, hjúskaparstöðu, fjölskyldustærðar eða kyns. |
| |
15.3 |
Heimilt er launamanni, sem gerist sjálfstæður atvinnurekandi, að halda áfram þátttöku í tryggingadeild sjóðsins.
Þá er atvinnurekanda á starfssvæði sjóðsins, heimilt að gerast sjóðfélagi. Í sambandi við
biðtímaákvæði 19-21. gr. skal réttindatími manns, er notar sér heimildarákvæði þessarar málsgreinar til að gerast
sjóðfélagi, reiknast frá lokum næsta mánaðar eftir þann mánuð, er iðgjöld berast sjóðnum fyrsta sinni. Sama á
við um þá einstaklinga, sem starfa á starfssviði, sem kjarasamningur tekur ekki til eða ráðningarbundin starfskjör eru ekki að neinu leyti
byggð á kjarasamningum, en óska eigi að síður eftir aðild að tryggingadeild sjóðsins. |
| |
15.4 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að veita aðild að sjóðnum einstaklingum og sjálfstætt starfandi atvinnurekendum, er ekki ber skylda
til þátttöku í neinum ákveðnum lífeyrissjóði. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að leyfa félögum og
samböndum, sem standa að samningum um kaup og kjör þeirra launamanna, er aðild eiga að sjóðnum, að tryggja í honum þá starfsmenn
sína, sem ekki eiga aðild að öðrum lífeyrissjóðum. |
| |
15.5 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að veita íslenskum launamönnum sem starfa erlendis, s.s. sjómönnum sem starfa á skipum
skráðum erlendis, aðild að sjóðnum, enda komi þá réttindi aðeins fyrir þau iðgjöld sem sjóðnum berast þeirra
vegna. |
| |
15.6 |
Launamenn eða sjálfstætt starfandi einstaklingar sem gerast aðilar að sjóðnum á grundvelli ákvæða 15.2-15.5 skulu
greiða lágmarksiðgjald til sjóðsins í samræmi við ákvæði gr. 16.1.-16.3 |
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...