STAPI, lífeyrissjóður

Laus til útborgunar við 60 ára aldur Inneign í séreignardeildinni er laus til útborgunar við 60 ára aldur og hægt er að dreifa útgreiðslu hennar skv.

Útborgun séreignar

Laus til útborgunar við 60 ára aldur
Inneign í séreignardeildinni er laus til útborgunar við 60 ára aldur og hægt er að dreifa útgreiðslu hennar skv. samkomulagi við sjóðinn. Séreignardeildin er því góður kostur fyrir þá sem vilja hætta eða draga úr vinnu áður en lögboðnum lífeyrisaldri er náð. Hún er einnig mjög góður kostur fyrir þá sem t.d. vilja hafa rýmri fjárráð fyrstu 10 árin sem þeir eru á eftirlaunaaldri en gera má ráð fyrir að það séu alla jafna virkustu árin á eftirlaunaaldrinum. Þeir myndu þá nýta séreignarsparnað sinn á þessum árum til viðbótar við almenn lífeyrisréttindi.

Laus til útborgunar við örorku
Sjóðfélagi sem þarf að hætta störfum vegna varanlegrar heilsubilunar á rétt á að fá séreign sína greidda út á 7 árum, sé um að ræða 100% örorku, en hlutfallslega lengri tíma sé örorkan metin minni.

Inneign erfist
Við fráfall sjóðfélaga fellur inneign hans í séreignardeildinni til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Láti rétthafi ekki eftir sig börn eða maka, skal innistæðan renna til dánarbús rétthafa.

Sérstök útgreiðsla séreignar, hámark 6.250.000 kr.
Með lögum sem sett voru snemma árs 2009 var sjóðfélögum veitt tímabundin heimild til að taka út séreignarsparnað sinn og var heimildin miðuð við 1.000.000 kr., heimildin var rýmkuð, fyrst í 2.500.000 kr.  og síðar í 5.000.000 kr. Með lögum sem samþykkt voru 17. september s.l. var heimild þessi veitt á ný og rýmkuð og er nú samtals 6.250.000 kr. Frestur til að nýta heimildina var svo framlengdur með lagasetningu í desember 2011 og er nú til 1. október 2012.

Upplýsingar um heimildina:

  • Heimilt er að greiða út innstæðu séreignarsparnaðar allt að 6.250.000 króna óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila.
  • Inneign sem hægt er að taka út miðast við stöðu 1. janúar 2012, en þó aldrei hærri fjárhæð en 6.250.000 krónur.
  • Inneignin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, á 15 mánuðum frá því beiðni um útgreiðslu er lögð fram.
  • Útgreiðslutími styttist ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr er að ræða.
  • Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimild dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.
  • Sé óskað eftir útgreiðslum samkvæmt heimild þessari fellur fyrra greiðslufyrirkomulag niður.
  • Umsókn um úttekt þarf að hafa borist  fyrir 20. dags mánaðar fyrir fyrstu útborgun.
  • Stapi lífeyrissjóður þarf eins og aðrir vörsluaðilar að fá samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
  • Sjóðfélagi ber ábyrgð á að upplýsa sjóðinn í hvaða skattþrepi skattgreiðslur af úttekt eiga að vera.

Eyðublað um sérstaka útgreiðslu

Lög um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum (hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, fjárfestingarheimildir).






Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf