STAPI, lífeyrissjóður

Iðgjald Iðgjald til lífeyrissjóðs skal ekki vera lægra en 12% af iðgjaldsstofni en heimilt er að greiða hærra iðgjald enda sé kveðið á um það í sérlögum

Tryggingadeild - iðgjöld

Iðgjald
Iðgjald til lífeyrissjóðs skal ekki vera lægra en 12% af iðgjaldsstofni en heimilt er að greiða hærra iðgjald enda sé kveðið á um það í sérlögum eða samið um það í kjarasamningi, ráðningarsamningi eða með öðrum sambærilegum hætti sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 391/1998.  Að jafnaði er framlag launamanns 4% og launagreiðanda 8%.

Iðgjald atvinnurekanda eða þeirra sem stunda sjálfstæða starfsemi er 12% af launum og ber að skipta greiðslunni í 4% og 8% líkt og hjá launamanni.

Ríki og sveitarfélög greiða 11,5% mótframlag.

Iðgjaldsstofn
Iðgjaldsstofn samanstendur af heildarfjárhæð greiddra launa og endurgjalds fyrir hvers konar vinnu, starf og þjónustu sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 129/1997.  Nánar tiltekið þá falla undir iðgjaldsstofn allar tegundir launa eða þóknana sem skattskyld eru skv. 1. mgr. 1. tölul. A liðar 7. gr. laga nr. 90/2003.

Til gjaldstofns skal ekki telja hlunnindi sem greidd eru í fríðu, svo sem fatnað, fæði og húsnæði eða greiðslur sem ætlaðar eru til endurgreiðslu á útlögðum kostnaði, t.d. ökutækjastyrki, dagpeninga og fæðispeninga.  Enn fremur skal ekki telja til gjaldstofns eftirlaun og lífeyri sem Tryggingastofnun ríkisins eða lífeyrissjóður greiðir, bætur greiddar af Tryggingastofnun ríkisins, slysa- og sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga og bætur tryggingafélaga vegna atvinnutjóns af völdum slysa.

Iðgjaldsstofn þeirra sem eru með sjálfstæða starfsemi skal vera reiknað endurgjald í samræmi við 2. mgr. 1. töluliðar A-liðar, 7. gr.laga nr. 90/2003 um tekjuskatt  sbr. 59. gr. þeirra laga.

Launagreiðanda er skylt að halda eftir af launum iðgjaldshluta launþega og standa hlutaðeigandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt iðgjaldshluta sínum.

Þátttaka í lífeyrissjóði er hluti af starfskjörum launamanna á Íslandi. Um þetta hefur verið samið í kjarasamningum milli samtaka atvinnurekenda og launamanna. Þessi skipan mála hefur verið staðfest með lögum um lífeyrissjóði nr. 129/1997. Almennu lífeyrissjóðirnir eru byggðir á þessum kjarasamningum og þar með aðild launamanna að tilteknum lífeyrissjóði. Sjóðirnir eru skyldugir að tryggja alla launamenn sem eiga rétt á aðild að viðkomandi sjóði, skv. kjarasamningi. Á sama hátt eru launamenn sem falla undir tiltekinn kjarasamning skyldugir að greiða í viðkomandi lífeyrissjóð.


Fyrir hverja er greitt til sjóðsins?

Skil á lífeyrisiðgjöldum til Stapa lífeyrissjóðs byggja á kjarasamningum sem eftirtalin aðildarfélög sjóðsins (eða samtök þeirra) hafa gert:

Fyrir hönd launagreiðanda:
  • Samtök atvinnulífsins fh. aðildarfélaga og fyrirtækja

Fyrir hönd launamanna (heildarsamtök þeirra fh. aðildarfélaga):
  • Afl, starfsgreinafélag Austurlands
  • Aldan, stéttarfélag
  • Eining-Iðja, Eyjafirði
  • Fagfélagið
  • Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
  • Framsýn, stéttarfélag
  • Iðnsveinafélag Skagafjarðar
  • Stéttarfélagið Samstaða
  • Verkalýðsfélag Þórshafnar
  • Verslunarmannafélag Skagfirðinga
  • Þingiðn, félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslu

Sama á við um kjarasamninga sem ofangreind félög hafa gert við Launanefnd sveitarfélaga vegna félagsmanna í þessum félögum.

Stapi lífeyrissjóður býður alla velkomna sem mega velja sér lífeyrissjóð. Allir þeir sem ekki eiga skylduaðild að ákveðnum sjóði á grundvelli starfsgreinar sinnar eða laga, hafa svigrúm til að velja sér lífeyrissjóð.



Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf