STAPI, lífeyrissjóður

Stýring á áhættu sjóðsins er með eftirfarandi hætti Hefðbundar mælingar á áhættu sbr. ofangreinda liði eru gerðar a.m.k. mánaðarlega þ.m.t. á

Eftirfylgni og áhættumælingar

Stýring á áhættu sjóðsins er með eftirfarandi hætti

Hefðbundar mælingar á áhættu sbr. ofangreinda liði eru gerðar a.m.k. mánaðarlega þ.m.t. á tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins. Að hluta til er gerð grein fyrir þróun áhættu í mánaðarlegum ávöxtunarskýrslum stjórnar, en nákvæmari umfjöllun er í ársfjórðungslegum ávöxtunarskýrslum og áhættumælingarskýrslum. Þróun markaða er tekin fyrir á reglulegum fundum Fjárfestingarráðs sjóðsins og þar eru teknar ákvarðanir um breytingar á virkri stýringu sjóðsins þegar aðstæður á mörkuðum kalla á slíkt. Er í því efni litið bæti til áhættu og ávöxtunar. Samandregið má lýsa eftirfylgninni svo:

Til skamms tíma: Fylgjast með eignasöfnum, fylgjast með eignastýrendum, fylgjast með framlagi áhættuþátta
Til meðallangs tíma: Áhætta af virkri eignastýringu, þróun raunverulegra safna og viðmiða, reglu áhætta
Til lengri tíma: Tryggingafræðileg áhætta og úttekt, gjaldhæfi (komast hjá því að lækka réttindi)

Allar fjárfestingahreyfingar eru lagðar fyrir stjórn sjóðsins á hverjum stjórnarfundi. Þar er jafnframt yfirlit yfir árangur sjóðsins á mánaðargrunni, árangur undirsafna í hverjum eignaflokki og samanburður við viðmiðunarvísitölur.
  • Lagður er fram listi yfir afkomu gjaldeyrisvarna og annarra skiptasamninga ef um þá er að ræða á hverjum stjórnarfundi.
  • Lagðar eru fram upplýsingar um framvindu fjárfestingaráætlunar, hvernig hún stendur miðað við markmið og hvaða frávik eru og hvers vegna, m.a. til að ákveða hvort og/eða hvernig skuli bregðast við þeim.
  • Auk þess eru lagðar fyrir stjórn upplýsingar um vanskil, upphæðir og aldur, bæði á skuldabréfaeign og iðgjöldum og þannig fylgst með þróun vanskila og áætlaðri skuldara- og greiðsluáhættu. Færðir eru sérstakir afskriftarreikningar hjá sjóðnum til að mæta væntum töpum í þessum eignaflokkum. Í því efni er tekið tillit til stærðar viðkomandi flokka, vanskila og sérstakra afskriftartilefna.
  • Ársfjórðungslega er lögð fram ávöxtunarskýrsla þar sem gerð er grein fyrir ávöxtun viðkomandi ársfjórðungs, ásamt ávöxtun frá sl. áramótum. Farið er yfir árangur sjóðsins í heild og undirsafna bæði hvað varðar ávöxtun og áhættu, ásamt margskonar útreikningi m.a. á hermiskekkju, árangurshlutföllum, fylgni, fé í húfi og ýmis hlutföll reiknuð út. Einnig er farið yfir árangur gjaldeyrsvarna og samninga miðað við skilgreind viðmið. Farið er yfir hvort fjárfestingar sjóðsins og undirsafna eru í samræmi við stefnu og heimildir.

Við innra eftirlit hjá sjóðnum er yfirfarið með reglubundnum hætti hvort söfn eru innan skilgreindra marka og hvort upplýsingagjöf til stjórnar og opinberra eftirlitsaðila er með eðlilegum hætti og hvort starfsmenn hafa haldið sig innan heimilda. Sjóðurinn hefur mótað öryggisstefnu og fylgst er með og skráð niður frávik sem kunna að koma upp.
 

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf