Frjálst val um vörsluaðila
Launþega er frjálst að velja til hvaða séreignasjóðs viðbótarlífeyrissparnaður greiðist en viðkomandi séreignasjóður tilkynnir launagreiðenda um samning á milli launþega og séreignasjóðs.
Framlag launagreiðenda og launþega
Stapi tekur á móti viðbótarlífeyrissparnaði í séreign. Flestir launþegar leggja fyrir sjálfir 2-4% af launum og fá 2% á móti frá launagreiðanda. Þetta bil kemur til af því að til að fá mótframlag samkvæmt kjarasamningum þarf að spara a.m.k. 2%, en hámarks frestun á skatti launþega vegna þessa sparnaðar er 4%. Ekkert hámark er á því hve mikið mótframlag vinnuveitendur mega greiða og er það samningsatriði milli launagreiðenda og launþega.
Tímabundið 6% framlag launþega
Til hvatningar þeim er hafa svigrúm til áframhaldandi sparnaðar er hægt að draga allt að 6% framlag í séreignarsparnað frá tekjuskattsstofni á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010. Skv. lögum um breytingu á lögum nr. 129/1997.