Séreignarsparnaður er mikilvæg viðbót
Tryggingadeild sjóðsins stendur undir þeim lágmarkslífeyri sem öllum ber að tryggja sér í formi ellilífeyris til æviloka, auk trygginga til að verja sjóðfélagana og fjölskyldur þeirra gegn tekjumissi við örorku eða fráfall. Þessar grunntryggingar eru mikilvægar, þegar það er haft í huga að slys og áföll gera ekki boð á undan sér og að við starfslok getur allt að fjórðungur ævinnar verið eftir! Góð örorku- og makatrygging, auk ævilangs lífeyris eru því mikilvægar grunntryggingar. Greiðsla í séreignarsparnað er hins vegar mikilvæg viðbót fyrir þá sem vilja auka lífeyrissparnað sinn. Með því móti geta þeir tryggt sér meiri sveigjanleika við starfslok eða haft rýmri fjárráð fyrst eftir að lífeyrisaldri er náð.
Iðgjald og mótframlag
Viðbótariðgjald til séreignardeildar Stapa lífeyrissjóðs, allt að 4% af launum, er undanþegið staðgreiðslu. Mótframlag launagreiðanda skal vera 2% af öllum launum samkvæmt kjarasamningi. Þessu til viðbótar er séreignarlífeyrir undanþeginn eignarskatti og fjármagnstekjuskatti. Við útborgun er lífeyririnn tekjuskattskyldur eins og annar lífeyrir.
Hagkvæmasti sparnaðurinn
Hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvort hann notfærir sér þessa viðbótarsparnaðarleið eða ekki. Jafnframt er hægt að velja til hvaða aðila og í hvers konar sparnað þetta viðbótariðgjald á að fara. Eina skilyrðið er að það fari til löggilts lífeyrissjóðs eða til aðila, sem hefur heimild til að taka við iðgjaldi vegna lífeyrisparnaðar lögum samkvæmt. Verkalýðsfélög hafa samið um mótframlag launagreiðenda til viðbótarlífeyrissparnaðar. Þetta mótframlag er nú 2% og er háð því að launþegi leggi að minnsta kosti 2% af launum til sparnaðarins. Mótframlag launagreiðanda gefur hverri innborgun því 50-100% ávöxtun um leið og hún er innt af hendi. Það er ekkert annað sparnaðarform eins hagkvæmt. Eftirfarandi töflur sýna yfirburði þessa sparnaðar mjög greinilega.

| Heildarlaun - > |
200.000 | 400.000 |
600.000 |
| 2% viðbótarlífeyrissparnaður | 4.000 |
8.000 | 12.000 |
| 2% mótframlag | 4.000 | 8.000 | 12.000 |
| Lækkun á staðgreiðslu | -1.489 | -3.210 | -4.814 |
| Útborguð laun lækka um | 2.511 | 4.790 | 7.186 |
| Innborgun á sparnað er | 8.000 | 16.000 | 24.000 |
| Heildarlaun - > |
200.000 | 400.000 |
600.000 |
| 4% viðbótarlífeyrissparnaður | 8.000 |
16.000 | 24.000 |
| 2% mótframlag | 4.000 | 8.000 | 12.000 |
| Lækkun á staðgreiðslu | -2.978 | -6.419 | -9.629 |
| Útborguð laun lækka um | 5.022 | 9.581 | 14.371 |
| Innborgun á sparnað er | 12.000 | 24.000 | 36.000 |