STAPI, lífeyrissjóður

Margir eiga lífeyrisréttindi í fleiri en einum sjóði. Því vakna oft upp spurningar hvort sjóðfélagar þurfi að halda sérstaklega utan um þessi réttindi

Réttindi í mörgum sjóðum

Margir eiga lífeyrisréttindi í fleiri en einum sjóði. Því vakna oft upp spurningar hvort sjóðfélagar þurfi að halda sérstaklega utan um þessi réttindi og/eða hvort líkur séu á því að réttindi geti glatast. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af þessu, en þó er góð regla að geyma hjá sér upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og ekki síst yfirlit sem menn fá send frá lífeyrissjóðum.

Til að halda utan um lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum á Íslandi og koma í veg fyrir að réttindi glatist, er annars vegar haldin svokölluð „Lífeyrisskrá“ og hins vegar er í gildi „Samkomulag um samskipti lífeyrissjóða“.

Lífeyrisskrá
Lífeyrissjóðir senda inn í þessa skrá upplýsingar um þá sem greitt hafa til þeirra (kennitölur). Reiknistofa lífeyrissjóða heldur utan um skrána. Allir lífeyrissjóðir eiga að hafa aðgang að skránni og þannig geta þeir séð í hvaða aðra sjóði allir þeirra sjóðfélagar hafa greitt. Í skránni eru einungis upplýsingar um til hvaða sjóða viðkomandi hefur greitt, en engar frekari upplýsingar s.s. um greiðslu iðgjalda eða réttindi. Hafa þarf samband við viðkomandi sjóð til að fá þær upplýsingar, sbr. Samkomulag um samskipti lífeyrissjóða.

Samkomulag um samskipti lífeyrissjóða
Flestir lífeyrissjóðir landsins eru aðilar að þessu samkomuagi. Tilgangur samkomulagsins er að koma í veg fyrir að réttindi glatist í lífeyrissjóðakerfinu, þegar greitt er til fleiri sjóða. Þannig á að vera nægjanlegt fyrir sjóðfélaga að sækja um hjá einum sjóði (yfirleitt þeim sjóði sem síðast var greitt til). Sá sjóður hefur aðgang að lífeyrisskránni og sér um að senda umsóknina áfram til annarra sjóða. Þá starfar sérstök úrskurðar- og umsagnarnefnd sem fjallar um álitamál, sem upp kunna að koma vegna réttinda í mörgum sjóðum.


Samkomulagið tekur til eftirfarandi þátta:
  • Réttindi í fleirum en einum sjóði
  • Skipting framreiknings milli sjóða
  • Reglur um barnalífeyri milli sjóða
  • Upplýsingagjöf milli sjóða
  • Réttindaflutningar milli sjóða
  • Umsókn um lífeyri vegna réttinda í mörgum sjóðum
  • Úrskurðar og umsagnarnefnd

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf