STAPI, lífeyrissjóður

Örorkulífeyrir er í eðli sínu afkomutrygging fyrir sjóðfélaga, þegar hann missir tekjur vegna orkutaps sem varir í 6 mánuði eða lengur. Örorkulífeyri er

Örorkulífeyrir

Örorkulífeyrir er í eðli sínu afkomutrygging fyrir sjóðfélaga, þegar hann missir tekjur vegna orkutaps sem varir í 6 mánuði eða lengur. Örorkulífeyri er ætlað að tryggja tekjutap og greiðist meðan örorka varir.

Trúnaðarlæknir sjóðsins eða teymi sérfræðinga metur orkutap og miðast það fyrstu 3 árin við vanhæfni sjóðfélaga til að gegna starfi því sem veitti honum aðild að sjóðnum, en eftir það við vanhæfni til að gegna almennum störfum.

Hvað ákvarðar upphæð örorkulífeyris?
  • Áunninn réttindi, eins og þau eru við orkutapið.
  • Framreiknaður réttur, sem ætlað er að meta framtíðartekjutap. Til að eiga rétt á þessu þarf sjóðfélaginn að hafa greitt ákveðið lágmarksiðgjald til sjóðsins í a.m.k. þrjú af síðustu fjórum árum og þar af sex af síðustu tólf mánuðum. Ýmis önnur skilyrði eru fyrir rétti til framreiknings sbr. samþykktir sjóðsins.
  • Hlutfall orkutaps. Til að eiga rétt á örorkulífeyri þarf sjóðfélagi að hafa orðið fyrir orkutapi, sem nemur 50% eða meira og orkutap þarf að vara lengur en 6 mánuði. Samanlagður örorkulífeyrir og barnalífeyrir skal aldrei vera hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem sjóðfélaginn hefur sannanlega orðið fyrir sökum örorkunnar. Við mat á tekjumissi skal leggja til grundvallar meðaltal tekna sjóðfélagans síðustu fjögur almanaksár fyrir orkutapið.

Starfsendurhæfing
  • Hægt er að setja það sem skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris að sjóðfélagi fari í endurhæfingu sem bætt gæti heilsufar hans.
  • Unnið er að samkomulagi og uppbyggingu starfsendurhæfingar á starfssvæði sjóðsins. Tilgangur og markmið starfsendurhæfingarinnar verður að aðstoða fólk, sem lendir utan vinnumarkaðar um lengri eða skemmri tíma, við endurkomu til vinnu og jafnframt stuðla að bættum lífsgæðum og endurnýjuðu starfsþreki.
  • Lögð verður áhersla á að endurhæfingin fari sem mest fram í heimabyggð þeirra sem hennar njóta og að allar stoðir nærsamfélagsins komi að málum, s.s. heilbrigðiskerfið, mennta-og fræðslukerfið, félagsþjónusta, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar og fleiri aðilar.

Umsókn um örorkulífeyri
Umsækjandi fyllir út umsókn ásamt tekjuáætlun. Áríðandi er að eyðublöðin séu skilmerkilega útfyllt til að tefja ekki fyrir afgreiðslu umsóknarinnar.

Fylgigögn sem umsækjandi þarf að útvega:
  • Læknisvottorð (ítarlegt). Hægt er að fá eyðublað fyrir læknisvottorð ef óskað er.
  • Tekjuútskrift úr skattaframtölum 4 ár fyrir orkutap til dagsins í dag, staðfest af viðkomandi skattstofu.
  • Útskrift úr staðgreiðsluskrá vegna yfirstandandi árs.
  • Skattkort, til afhendingar síðar þegar niðurstaða liggur fyrir
  • Ef umsækjandi á börn undir 18 ára aldri sem ekki búa hjá honum þarf fæðingarvottorð (Hagstofa Íslands) eða afrit af meðlagsúrskurði (Sýslumaður)

Tenglar:


Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf