STAPI, lífeyrissjóður

Yfirlit yfir fjárfestingar og áhættustjórnun Ferill við fjárfestingar og áhættumat Hlutverk og markmið Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum,

Skipulag og markmið

Yfirlit yfir fjárfestingar og áhættustjórnun



Ferill við fjárfestingar og áhættumat


Hlutverk og markmið
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins og að bjóða upp á   lífeyrisréttindi eins og þau gerast best að teknu tilliti til iðgjalda og tryggingafræðilegra forsenda. Megin markmið sjóðsins er að hámarka lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga og að eiga ávallt fyrir skuldbindingum og skal áhætta í eignasöfnum sjóðsins taka mið af því. Þessu markmiði hyggst sjóðurinn ná með því að ávaxta fjármuni sjóðsins eins vel og kostur er að teknu tilliti til þeirrar áhættu sem stefna sjóðsins leyfir.

Mótun fjárfestingarstefnu
Fjárfestingarstefna sjóðsins tekur bæði til markmiða um ávöxtun og áhættu. Þeir eignaflokkar sem sjóðurinn fjárfestir í eru afmarkaðir af ákvæðum laga og þeim skilyrðum sem fjárfestinga-stefnan setur. Fjárfestingarstefna sjóðsins er yfirfarin árlega og hefur það að markmiði að ávöxtunin sé í eins ríkum mæli og kostur er betri en nemur hækkun skuldbindinga, miðað við áhættu sem skilgreind er sem ásættanleg fyrir sjóðinn.

Fjárfestingarstefna sjóðsins tekur bæði til markmiða og skilgreininga fyrir sjóðinn í heild sem og einnig fyrir þá eignaflokka sem sjóðurinn fjárfestir í og einstaka undirsöfn í þeim eignaflokkum. Einstök söfn geta bæði verið í stýringu hjá sjóðnum sjálfum eða verið úthýst til annarra eignastýrenda. Sjóðurinn þarf að hafa starfsmenn á sínum snærum sem hafa nægjanlega sérþekkingu til að geta mótað og fylgt eftir fjárfestingarstefnu sjóðsins. Stefnu sjóðsins er lýst með eftirfarandi hætti:

„Í fjárfestingum sínum reynir sjóðurinn að stjórna áhættu með því að takmarka tapsáhættu og miklar sveiflur í ávöxtun. Sjóðurinn beitir virkri stýringu og leitast við að finna  fjárfestingartækifæri þar sem hagnaðarvon er mun meiri og stöðugri en væntanlegt tap (ósamhverf afkoma). Sjóðurinn reynir að beita virkum vörnum við að forðast neikvæða ávöxtun. Með þessu móti leitast hann við að hámarka uppsöfnunaráhrif ávöxtunar til lengri tíma litið og forðast stór töp sem langan tíma tekur að vinna upp. Sjóðurinn er þannig tilbúinn að fórna „mesta mögulega hagnaði“ til skemmri tíma litið, til að verjast töpum. Þegar fjárfestingarkostir eru skoðaðir er áhersla lögð á að meta tapsáhættu og aðeins er fjárfest ef slík áhætta er undir ásættanlegum mörkum. Töluleg viðmið eru skilgreind í fjárfestingarstefnu sjóðsins, en jafnframt er lögð áhersla á að starfsmenn sjóðsins séu meðvitaðir um alla helstu áhættuþætti í rekstri hans. Við fjárfestingar einbeitir sjóðurinn sér að breytingum á þeim mörkuðum sem hann fjárfestir á. Breytingar í fjárfestingaumhverfi eru megin uppspretta áhættu og gefa jafnframt mikla möguleika til ávöxtunar. Mikilvægt er að meta hvernig þessar breytingar hafa áhrif á afkomu einstakra eignaflokka og hvað  veldur þessum breytingum. Sjóðurinn reynir að meta hvaða áhrif breytingar hafa á eignaverð og hvernig mat á þeim má nýta til að verjast áhættu og um leið til að ná góðri ávöxtun til lengri tíma litið. Aðlögun að breyttum aðstæðum og nýjungar í ávöxtun og áhættumati eru mikilvægar  til að ná góðum langtímaárangri.“

Fjárfestingarmarkmið

Fjárfestingarmarkmiðin eru eftirfarandi:
a.    Að ná að ávaxta sjóðinn þannig að hann standi undir skuldbindingum.
b.    Ná a.m.k. 5% árlegri raunávöxtun að meðaltali á hverju 5 ára tímabili
c.    Ná 1-2% ávöxtun umfram verðbréfagrunn (viðmiðunarvísitölu) að meðaltali árlega á hverju 5 ára  tímabili.
d.    Ná a.m.k. 0,5-1% ávöxtun umfram “meðalsjóðinn” á hverju 5 ára tímabili.


Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf