Við andlát sjóðfélaga öðlast maki hans rétt til makalífeyris frá sjóðnum. Maki sjóðfélaga telst vera sá
eða sú sem var í hjúskap, staðfestri sambúð eða óvígðri sambúð sem jafna má til hjúskapar, enda hafi
fjárfélagi ekki verið slitið fyrir andlát.
Ef réttur til makalífeyris stofnast þá greiðist fullur makalífeyrir að lágmarki í 36 mánuði og 50% makalífeyrir er greiddur í 24 mánuði til viðbótar. Sé maki sjóðfélaga að minnsta kosti 50% öryrki, skal greiddur makalífeyrir meðan sú örorka varir, þó ekki lengur en til 67 ára aldurs. Makalífeyrir greiðist alltaf til 20 ára aldurs yngsta barns.
Makalífeyrir hverju sinni er 50% af elli- eða örorkulífeyrisréttindum sjóðfélagans. Auk áunninna réttinda kann maki að eiga rétt á framreikningi. Framreikningsreglur eru þær sömu og í örorkulífeyri.
Tenglar: