Stapi lífeyrissjóður samanstendur af tveimur deildum, tryggingadeild (L500) og séreignadeild (X501), að auki hefur Endurhæfingarsjóður gert samkomulag við sjóðinn um innheimtu iðgjalda (R500).
Launagreiðanda er skylt að halda eftir af launum iðgjaldshluta launþega og standa hlutaðeigandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt iðgjaldshluta sínum.
Þátttaka í lífeyrissjóði er hluti af starfskjörum launamanna á Íslandi. Um þetta hefur verið samið í kjarasamningum milli samtaka atvinnurekenda og launamanna. Þessi skipan mála hefur verið staðfest með lögum um lífeyrissjóði nr. 129/1997. Almennu lífeyrissjóðirnir eru byggðir á þessum kjarasamningum og þar með aðild launamanna að tilteknum lífeyrissjóði. Sjóðirnir eru skyldugir að tryggja alla launamenn sem eiga rétt á aðild að viðkomandi sjóði, skv. kjarasamningi. Á sama hátt eru launamenn sem falla undir tiltekinn kjarasamning skyldugir að greiða í viðkomandi lífeyrissjóð.
Lög og reglugerðir
A. Löggjöf
B. Reglugerðir

- Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.
- Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt með síðari breytingum.
- Lög nr. 113/1990 um tryggingagjald, með síðari breytingum.
- Lög nr. 155/1998 um söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.
- Lög nr. 95/2000 um fæðingarorlof og foreldraorlof.
B. Reglugerðir
- Reglugerð nr. 391/1998 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sbr. reglugerð nr. 742/1998, um breytingu á henni.
- Reglugerð nr. 698/1998 um ráðstöfun iðgjalds til lífeyrissparnaðar og viðbótartryggingavernd, sbr. reglugerð nr. 9/1999, um breytingu á henni.