STAPI, lífeyrissjóður
Breytingar á samþykktum, slit og samruni
10.
Breytingar á samþykktum.
10.1
Tillögur um breytingar á samþykktum þessum má því aðeins taka fyrir, að
IV. kafli
Breytingar á samþykktum, slit og samruni
| 10. |
Breytingar á samþykktum. |
| |
10.1 |
Tillögur um breytingar á samþykktum þessum má því aðeins taka fyrir, að þær hafi borist stjórn
sjóðsins a.m.k. þremur vikum fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins skal minnst tveimur vikum fyrir ársfund senda aðildarfélögum
sjóðsins tillögur um breytingar á samþykktum til kynningar. Ennfremur verður að geta tillagnanna í fundarboði. Miði tillaga að aukningu
réttinda eða breytingum á fjárfestingarstefnu sem ætla má að haft geti áhrif á getu sjóðsins til greiðslu lífeyris skal
fylgja tryggingafræðileg úttekt á afleiðingum breytingarinnar á gjaldhæfi sjóðsins. Breytingartillögu sem skert getur stöðu
sjóðsins svo hann fullnægi ekki lágmarkskröfum skv. lögum nr. 129/1997 eða samningi milli ASÍ og VSÍ um lífeyrismál, 12. desember
1995, með síðari breytingum, skal vísað frá ársfundi. Tillögurnar skulu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins í tvær vikur
fyrir ársfund og það auglýst þannig að sjóðfélögum gefist kostur á að koma að athugasemdum á ársfundi. |
| |
10.2 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að gera breytingar á samþykktum þessum án þess að bera þær undir
ársfund, ef þær leiða af ófrávíkjanlegum ákvæðum laga eða reglugerð. Stjórn er einnig heimilt að breyta
ákvæðum 6. greinar um fjárfestingarheimildir sjóðsins ef breytingar verða á 36. grein laga nr. 129/1997. Breytingar sem gerðar eru með heimild
í þessari grein skulu kynntar formlega á næsta ársfundi sjóðsins. |
| |
10.3 |
Breytingar á samþykktum þessum taka því aðeins gildi að þær hljóti samþykki a.m.k. 2/3 hluta
fulltrúa í fulltrúaráði á ársfundi og hafi hlotið staðfestingu fjármálaráðuneytisins.
|
| 11. |
Sameining við annan sjóð, samningar um tryggingavernd og rekstur |
| |
11.1 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við stjórnir annarra lífeyrissjóða um samruna viðkomandi
lífeyrissjóða. Stjórnin skal gæta þess að réttur sjóðfélaga sjóðsins verði ekki skertur við samrunann og jafnframt
að hann sé ekki bættur á kostnað sjóðfélaga hinna sjóðanna. Samrunasamningur milli sjóðsins og annarra
lífeyrissjóða, skal hljóta samþykki árs- eða aukafundar með sama hætti og breytingar á samþykktum sjóðsins. |
| |
11.2 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að selja öðrum sjóðum tryggingavernd og hafa samstarf við aðra sjóði um einstaka
þætti tryggingaverndar. |
| |
11.3 |
Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við stjórnir annarra lífeyrissjóða um að sjóðurinn sjái um
rekstur þeirra, sjóðirnir hafi sameiginlegt skrifstofuhald eða hafi samstarf um rekstur og ávöxtun fjármuna. Við gerð slíkra samninga skal
þess gætt að rekstrarkostnaði sé skipt með eðlilegum og ótvíræðum hætti milli aðila og í samræmi við samkomulag
stjórna viðkomandi sjóða. Sama á við um skiptingu á ávinningi eða tapi ef um samstarf um ávöxtun fjármuna er að
ræða.
|
| 12. |
Slit á sjóðnum |
| |
12.1 |
Við ákvörðun um slit á sjóðnum þarf 75% atkvæða í báðum hlutum fulltrúaráðs
á árs- eða aukafundi sjóðsins. Að öðru leyti fer um slit sjóðsins skv. X. kafla laga nr. 129/1997.
|
| 13. |
Gildistaka |
| |
13.1 |
Samþykktir þessar gilda frá 6. maí 2010 að fenginni staðfestingu fjármálaráðuneytisins. |
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...