STAPI, lífeyrissjóður
Framsal, eftirlit og gerðardómur
7.
Bann við framsali og veðsetningu lífeyris
7.1
Réttur til lífeyris verður eigi af hendi látinn né
III. kafli
Framsal, eftirlit og gerðardómur
| 7. |
Bann við framsali og veðsetningu lífeyris |
| |
7.1 |
Réttur til lífeyris verður eigi af hendi látinn né veðsettur.
|
| 8. |
Málsmeðferð og gerðardómur |
| |
8.1 |
Vilji sjóðfélagi ekki una úrskurði sjóðsstjórnar í máli, er hann hefur skotið til hennar, getur hann
vísað því til gerðardóms innan þriggja mánaða frá því að tilkynnt var um úrskurðinn. Gerðardómurinn
skal skipaður þremur mönnum, einum tilnefndum af sjóðfélaga, einum tilnefndum af Stapa lífeyrissjóði og oddamanni tilnefndum af
Héraðsdómi Norðurlands eystra. Gerðardómurinn skal úrskurða í málinu á grundvelli þeirra krafna, sönnunargagna,
málsástæðna og annarra upplýsinga sem lágu fyrir sjóðstjórn er hún tók ákvörðun um málið. Komi fram
nýjar kröfur, sönnunargögn og málsástæður við meðferð málsins fyrir gerðardómi skal málinu vísað aftur
til sjóðstjórnar til endurupptöku. Sjóðstjórn er skylt að taka málið upp að nýju til úrskurðar. Gerðardómurinn
skal hafa lokið við að leggja dóm innan eins mánaðar frá því að öll gögn eru fram komin í máli. Úrskurður
gerðardómsins er bindandi fyrir báða aðila. Málskostnaði skal skipt milli málsaðila eftir mati dómsins, en þó skal
sjóðfélagi ekki greiða meira en 1/3 málskostnaðar. Um málsmeðferð fyrir gerðardómnum fer samkvæmt lögum um samningsbundna
gerðardóma.
|
| 9. |
Eftirlit |
| |
9.1 |
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi lífeyrissjóðsins í samræmi við lög nr. 129/1997 og lög
nr. 87/1998. |
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...