STAPI, lífeyrissjóður
Fjármál
5.
Reikningar og endurskoðun
5.1
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu gerðir í samræmi við lög, reglur og góða
II. kafli
Fjármál
| 5. |
Reikningar og endurskoðun |
| |
5.1 |
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu gerðir í samræmi við lög, reglur og góða reikningsskilavenju.
Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
|
| 6. |
Ávöxtun fjár sjóðsins |
| |
6.1 |
Stjórn sjóðsins skal móta fjárfestingarstefnu og ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem
best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. |
| |
6.2 |
Fjárfestingar sjóðsins og fjárfestingarstefna hans skulu vera í samræmi við heimildir laga og uppfylla allar þær kröfur um
form og efni, sem gerðar eru í ófrávíkjanlegum ákvæðum laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða, nú VII. kafla laga nr. 129/1997, og bindandi stjórnvaldsfyrirmælum á hverjum tíma og gildir það um allar deildir
sjóðsins. |
| |
6.3 |
Stjórn lífeyrissjóðsins skal móta fjárfestingarstefnu, þar sem sett eru viðmið að hvaða marki skuli fjárfesta
í einstökum eignaflokkum. Þar skal ennfremur koma fram markmið um dreifingu eigna, tímalengd krafna, myntsamsetningu, seljanleika eigna og aðrar þær
viðmiðanir, sem stjórn sjóðsins telur að gefi gleggsta mynd af fjárhagsstöðu lífeyrissjóðsins. Á ársfundi
lífeyrissjóðsins, skal stjórn sjóðsins kynna fjárfestingarstefnuna, sbr. grein 3.10.3. Mismunandi deildir sjóðsins geta haft mismunandi
fjárfestingastefnu. |
| |
6.4 |
Rekstur deilda sjóðsins skal vera fjárhagslega aðskilinn. Sameiginlegum kostnaði skal skipt milli deilda með eðlilegum og
ótvíræðum hætti, í hlutfalli við umfang hverrar deildar, samkvæmt reglum sem stjórn sjóðsins setur. |
| |
6.5 |
Heimilt er að bjóða upp á mismunandi verðbréfasöfn innan deilda sjóðsins, sem hafa mismunandi fjárfestingarstefnu.
Fjárfestingarstefna og eignasamsetning einstakra verðbréfasafna skal þó ávallt vera innan þeirra marka sem fjárfestingarstefna, samþykktir
sjóðsins og lög nr. 129/1997 heimila. |
| |
6.6 |
Heimilt er sjóðnum, að eiga fasteignir undir skrifstofur sínar. |
Ábendingar
föstudagur 06.mars 2009
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð sem nemur 4% af heildarlaunum.
Lesa meira
...