| 1. |
Nafn sjóðsins og heimili |
| |
1.1 |
Sjóðurinn heitir Stapi, lífeyrissjóður
Heimili hans og varnarþing er á Akureyri.
|
| 2. |
Hlutverk sjóðsins og deildaskipting |
| |
2.1 |
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri samkvæmt
ákvæðum samþykkta þessara. |
| |
2.2 |
Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tryggingadeild og séreignardeild. Halda skal fjárhag deildanna aðskildum.
Rekstrarkostnaði sjóðsins skal skipt milli deilda í hlutfalli við umfang hverrar deildar samkvæmt reglum sem stjórn sjóðsins setur. |
| |
2.3 |
Lífeyrissjóðurinn starfar samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
nr.129/1997, og á grundvelli samkomulags stéttarfélaga og atvinnurekenda frá 19. maí 1969 og 12. desember 1995. Tryggingadeild sjóðsins tryggir þau
lágmarksréttindi sem þar greinir. |
| |
2.4 |
Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á ellilífeyristryggingar og áskilur sér heimild til að verja og efla þau
réttindi umfram önnur við endurskoðun á réttindaákvæðum samþykkta þessara.
|
| 3. |
Aðildarfélög, fulltrúaráð og ársfundur. |
| |
3.1 |
Aðildarfélög sjóðsins geta verið stéttarfélög, starfsmannafélög og samtök launagreiðenda. |
| |
3.2 |
Neðangreind stéttarfélög og starfsmannafélög eru aðildarfélög sjóðsins fyrir hönd launamanna:
AFL, Starfsgreinafélag
Aldan, stéttarfélag
Eining-Iðja, Eyjafirði
Fagfélagið
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
Framsýn, stéttarfélag
Iðnsveinafélag Skagafjarðar
Stéttarfélagið Samstaða
Verkalýðsfélag Hrútfirðinga
Verkalýðsfélag Þórshafnar
Verslunarmannafélag Skagfirðinga
Þingiðn, félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslu
|
| |
3.3 |
Neðangreind samtök launagreiðenda eru aðilar að sjóðnum fyrir hönd launagreiðenda:
Samtök atvinnulífsins
|
| |
3.4 |
Umsókn stéttarfélags, starfsmannafélags, eða samtaka launagreiðanda um aðild að sjóðnum skal vera skrifleg og skal
sjóðstjórn svara aðildarumsókn skriflega innan 3ja mánaða frá því að hún barst sjóðnum. Úrsögn
aðildarfélags úr sjóðnum skal á sama hátt vera skrifleg og skal hún tilkynnt með minnst 6 mánaða fyrirvara. Innganga eða
úrsögn aðildarfélags skal samþykkt af stjórn sjóðsins. |
| |
3.5 |
Allir þeir sem greitt er fyrir, greiða eða hafa greitt iðgjöld til sjóðsins teljast sjóðfélagar. Sama gildir um
þá sem njóta elli- og örorkulífeyris frá sjóðnum. |
| |
3.6 |
Sérstakt fulltrúaráð að jöfnu skipað fulltrúum launamanna og atvinnurekenda, sem að sjóðnum standa, fer
með atkvæði á fundum. Fulltrúar launamanna skulu þannig valdir að hvert aðildarfélag launamanna að lífeyrissjóðnum
samkvæmt grein 3.2 kýs úr sínum hópi 1 fulltrúa fyrir allt að 200 félagsmenn og síðan einn fulltrúa fyrir hverja 200
félagsmenn umfram það, eða brot úr þeirri tölu, ef það nemur einu hundraði eða meira. Fulltrúar atvinnurekenda skulu þannig
valdir að 50 stærstu atvinnufyrirtæki og stofnanir með atvinnu- eða þjónustustarfsemi, með tilliti til iðgjaldagreiðslna af eigin starfsmönnum
til sjóðsins á næstliðnu reikningsári, tilnefna einn fulltrúa hver. Heimilt er að telja fyrirtæki sem gera samstæðuuppgjör sem einn
aðila m.t.t. þessarar greinar. Samtök launagreiðenda, sem aðild eiga að sjóðnum skv. grein 3.3, skulu tilnefna þá fulltrúa, sem á
vantar jafna tölu fulltrúa atvinnurekenda og launamanna í fulltrúaráðinu, í hlutfalli við iðgjöld aðildarfyrirtækja/stofnana sinna.
Tilkynna skal um tilnefningu í fulltrúaráð minnst 14 dögum fyrir lok yfirstandandi skipunartímabils og öðlast tilnefning gildi við upphaf
ársfundar og gildir fram að næsta ársfundi. Heimilt er fulltrúaráðsmanni að fara með umboð eins annars fulltrúa á fundum
fulltrúaráðsins. |
| |
3.7 |
Í atkvæðagreiðslum, sem fara fram á ársfundi, eða aukafundum fulltrúaráðs, skulu fulltrúar launamanna og
atvinnurekenda fara með helming atkvæða, hvorir um sig, án tillits til fjölda fulltrúa á fundi. Í atkvæðagreiðslum ræður afl
atkvæða nema öðru vísi sé ákveðið í samþykktum þessum. Þó er heimilt að óska eftir skiptri
atkvæðagreiðslu, þannig að fulltrúar atvinnurekenda og launamanna greiði atkvæði hvor í sínu lagi og þarf þá tilskilinn
meirihluta í báðum hlutum fulltrúaráðsins svo að samþykkt sé lögmæt. |
| |
3.8 |
Ársfundur hefur æðsta vald í málefnum sjóðsins, ef ekki er öðruvísi ákveðið í
samþykktum þessum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti. |
| |
3.9 |
Ársfund sjóðsins skal halda fyrir lok júní ár hvert.Stjórn sjóðsins getur boðað til aukafundar
þegar þurfa þykir. Skylt er stjórninni að boða til aukafundar ef aðildarfélag sjóðsins krefst þess skriflega og tilgreinir fundarefni.
Stjórnin skal boða til fundar með skriflegu fundarboði til aðildarfélaga sjóðsins, með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Þá skal
stjórnin auk þess auglýsa fundinn í dagblaði, útvarpi eða á annan sannanlegan hátt með a.m.k. 7 daga fyrirvara. |
| |
3.10 |
Á ársfundi skal taka fyrir: |
| |
|
3.10.1 |
Skýrslu stjórnar |
| |
|
3.10.2 |
Kynningu og afgreiðslu á ársreikningum og tryggingafræðilegri úttekt |
| |
|
3.10.3 |
Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins |
| |
|
3.10.4 |
Stjórnarkjör skv. 4. grein. Fulltrúar stéttarfélaga í fulltrúaráði skulu kjósa aðal- og varamenn í
stjórn. Fulltrúar samtaka atvinnurekenda skulu tilkynna um kjör stjórnar Samtaka atvinnulífsins á aðal- og varamönnum í stjórn. Gert
skal hlé á fundi meðan kosning skv. þessum lið fer fram. |
| |
|
3.10.5 |
Kosningu löggilts endurskoðanda, eða endurskoðunarskrifstofu. Einfaldur meirihluti atkvæða í fulltrúaráði ræður
niðurstöðu. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti. |
| |
|
3.10.6 |
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins, þegar slíkar tillögur liggja fyrir. Um tillögur um breytingar á
samþykktum sjóðsins fer samkvæmt ákvæðum 10. greinar. |
| |
|
3.10.7 |
Tillögu um laun stjórnarmanna. |
| |
|
3.10.8 |
Önnur mál. Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi
síðar en viku fyrir ársfund.
|
| 4. |
Stjórn |
| |
4.1 |
Stjórn sjóðsins skal skipuð sex mönnum. Þrír skulu kosnir af launamönnum og þrír af vinnuveitendum. Kosning
fulltrúa launamanna fer fram á ársfundi sjóðsins. Kosning fullrúa vinnuveitenda fer fram skv. ákvörðun aðildarfélaga
sjóðsins skv. grein 3.3. |
| |
4.2. |
Kjörtímabil stjórnarmanna er 2 ár og skal kjósa helming stjórnar á hverju ári. Það ár sem
fulltrúar launamanna kjósa tvo menn í stjórn, tilnefna fulltrúar launagreiðenda einn mann og það ár sem fulltrúar launamanna
kjósa einn mann, tilnefna fulltrúar launagreiðenda tvo menn. Varamenn skulu kosnir með sama hætti. |
| |
4.3 |
Stjórnarmenn skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og hafa aldrei verið
sviptir forræði á búi sínu og mega ekki á síðustu 5 árum hafa, í tengslum við atvinnurekstur, fengið dóm fyrir
refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot
eða opinber gjöld. Stjórnarmenn, sem búsettir eru í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eru þó undanþegnir
þessu búsetuskilyrði. Til viðbótar framangreindum skilyrðum skulu stjórnarmenn búa yfir nægjanlegri þekkingu og starfsreynslu til að geta
gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt.
|
| |
4.4 |
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Þó skulu fulltrúar vinnuveitenda og launamanna hafa á hendi formennsku til
skiptis eitt ár í senn. Stjórnin skal setja sér starfsreglur, hún skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til
þess að samþykkt sé lögmæt, þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði. Stjórnarfundur er
ályktunarhæfur ef meiri hluti stjórnarmanna er mættur eða varamenn í þeirra stað. Viðhafa skal leynilega atkvæðagreiðslu ef einn
eða fleiri stjórnarmenn krefjast þess. |
| |
4.5 |
Stjórn sjóðsins fer með yfirstjórn hans. Stjórnin skal fjalla um allar meiriháttar ákvarðanir varðandi
stefnumótun sjóðsins og starfsemi. Stjórn sjóðsins mótar innra eftirlit sjóðsins og skjalfestir eftirlitsferla, ræður
framkvæmdastjóra, ákveður laun hans og önnur starfskjör og setur honum starfsreglur. Stjórn sjóðsins ræður forstöðumann
endurskoðunardeildar eða semur við sjálfstætt starfandi eftirlitsaðila um að annast innra eftirlit. Stjórn sjóðsins skal móta
fjárfestingarstefnu hans, setja reglur um upplýsingagjöf framkvæmdastjóra til stjórnar um rekstur, iðgjöld, réttindaávinnslu og
ráðstöfun eigna sjóðsins. Þá skal stjórnin setja verklagsreglur um verðbréfaviðskipti lífeyrissjóðsins, stjórnar
hans og starfsmanna og fá þær staðfestar af Fjármálaeftirlitinu |
| |
|
4.5.1 |
Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur sjóðsins í samræmi við mótaða stefnu og ákvarðanir stjórnar.
Framkvæmdastjóri ræður starfsmenn til sjóðsins. Framkvæmdastjóri fer með atkvæði sjóðsins á fundum hlutafélaga
sem sjóðurinn á hluti í, nema stjórn ákveði annað í einstökum tilvikum. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins er
ekki kjörgengur sem stjórnarmaður í lífeyrissjóðnum. Framkvæmdastjóra er óheimilt að taka þátt í atvinnurekstri
nema að fengnu leyfi stjórnar. Um hæfi framkvæmdastjóra fer að öðru leyti eftir grein 4.3. Ákvarðanir sem eru óvenjulegar eða
mikilsháttar skal framkvæmdastjóri aðeins taka á grundvelli sérstakrar ákvörðunar stjórnar eða samkvæmt áætlun sem
samþykkt hefur verið af stjórninni. Sé ekki unnt að bera meiriháttar ákvarðanir undir stjórnarfund skal haft samráð við formann og
varaformann stjórnar og aðra stjórnarmenn eftir föngum. Slíkar ákvarðanir skal síðan taka fyrir á næsta stjórnarfundi |
| |
|
4.5.2 |
Stjórnin veitir og afturkallar prókúruumboð til handa framkvæmdastjóra og öðrum starfsmönnum. |
| |
4.6 |
Allar meiri háttar breytingar á skipulagi sjóðsins, innra eftirliti, bókhaldi og reikningsskilum, skal framkvæmdastjóri
aðeins gera að höfðu samráði við stjórn, og að fengnu samþykki hennar. |
| |
|
4.6.1 |
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að bókhald sjóðsins sé fært í samræmi við lög og
viðurkenndar venjur. Honum ber einnig að fylgja þeirri fjárfestingarstefnu og þeim útlánareglum sem stjórnin setur. Á reglubundnum
stjórnarfundum skal framkvæmdastjóri leggja fram yfirlit um fjárfestingar, rekstur og efnahag sjóðsins. |
| |
|
4.6.2 |
Framkvæmdastjóri skal veita stjórn og endurskoðanda allar þær upplýsingar um hag og starfsemi sjóðsins sem þeir
óska. |
| |
4.7 |
Stjórnarmaður lífeyrissjóðs eða framkvæmdastjóri má ekki taka þátt í meðferð máls
ef hann hefur hagsmuna að gæta sem kynnu að fara í bága við hagsmuni sjóðsins. Sama gildir ef um er að ræða ákvarðanir sem tengjast
fyrirtæki þar sem stjórnarmaður kann að eiga umtalsverðra hagsmuna að gæta sem eigandi, stjórnarmaður eða starfsmaður. Um hæfi til
meðferðar einstakra mála fer að öðru leyti eftir meginreglum stjórnsýslulaga. Skylt er þeim sem í hlut á að upplýsa um
aðstæður sem valda kunna vanhæfi skv. framansögðu. |
| |
|
4.7.1 |
Stjórn sjóðsins, framkvæmdastjóri og aðrir þeir er hafa heimild til að koma fram fyrir hönd sjóðsins mega ekki gera
neinar þær ráðstafanir sem bersýnilega eru til þess fallnar að afla ákveðnum sjóðfélögum, fyrirtækjum eða
öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna umfram aðra eða á kostnað sjóðsins. Þeir skulu einnig gæta þagmælsku um það
sem þeir verða áskynja í starfi sínu fyrir lífeyrissjóðinn og varða kann hagsmuni einstaklinga eða fyrirtækja og annað það
er leynt á að fara eftir eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi eða horfið úr stjórn |