STAPI, lífeyrissjóður

Sjóðfélagayfirlit eru send út tvisvar á ári til virkra sjóðfélaga og sjóðfélagar geta óskað eftir aðgang að sjóðfélagavef þar sem bæði er yfirlit yfir

Hafa iðgjöldin skilað sér?

Sjóðfélagayfirlit eru send út tvisvar á ári til virkra sjóðfélaga og sjóðfélagar geta óskað eftir aðgang að sjóðfélagavef þar sem bæði er yfirlit yfir iðgjaldagreiðslur og áunnin réttindi. Mikilvægt er að sjóðfélagar beri saman iðgjöld samkvæmt launaseðlum og yfirlit iðgjaldagreiðslna hjá Stapa svo að iðgjöld tapist ekki.

Til þess að iðgjöld  launþega njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot launagreiðenda, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu útsendra yfirlita ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til lífeyrissjóðsins. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að launþegi tilkynni það til lífeyrissjóðsins, með framlagningu launaseðla. Komi ekki fram athugasemd frá launþega, er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum sem þessi iðgjöld skapa, að því marki sem þau fást greidd.

Vinsamlegast hafið samband við sjóðinn ef frekari upplýsinga er óskað.

Tenglar:

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf