Bankaupplýsingar og númer sjóða
Kennitala sjóðsins er 601092-2559
Reikningsnúmer 565-26-6969
Númer sjóða:
Skilagreinar
Skilagreinum skal skilað rafrænt í gegnum launagreiðendavefsjóðsins. Áminning um áætluð iðgjöld er send launagreiðanda ef skilagreinar berast ekki af einhverjum ástæðum. Afar mikilvægt er að senda skilagreinar í hverjum mánuði jafnvel þótt launagreiðandi geti ekki greitt þær innan eindaga.
Innheimtukerfi sjóðsins áætlar iðgjöld þegar skilagreinar hætta að berast. Launagreiðendur og sjálfstæðir atvinnurekendur skulu lögum samkvæmt tilkynna hlutaðeigandi lífeyrissjóði ef þeim ber ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi, þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum.
Gjalddagi
Samkvæmt lögum skal iðgjaldagreiðslutímabil (launatímabil) eigi vera lengra en mánuður og skal gjalddagi vera tíunda næsta mánaðar. Eindagi skal vera síðasti dagur sama mánaðar og iðgjald fellur í gjalddaga (dæmi: gjalddagi júnílauna er 10. júlí og eindagi síðasti dagur júlímánaðar. Ef iðgjöld eru ekki greidd fyrir eindaga, reiknast á þau vanskilavextir frá gjalddaga til greiðsludags. Greiðslur iðgjalda eru mótteknar rafrænt af bankareikningum daginn eftir greiðslu.
Ertu búin að borga?
Ef greiðsla berst Stapa eftir eindaga reiknast vextir sem ekki eru innheimtir sérstaklega heldur er viðkomandi launagreiðanda send áminning um skuldastöðu. Allar greiðslur sem berast sjóðnum ráðstafast á elstu skuldir og vexti fyrst og því er ætíð yngsta skilagrein ógreidd að hluta ef vextir hafa ekki verið gerðir upp.
Launagreiðendur í greiðsluerfiðleikum eru hvattir til að gera skriflegt samkomulag við Stapa um niðurgreiðslu á skuldum.
Kennitala sjóðsins er 601092-2559
Reikningsnúmer 565-26-6969
Númer sjóða:
- L500, lögboðinn tryggingarsjóður
- X501, séreignardeild
- R500, endurhæfingarsjóður