Sjóðfélagi getur hafið töku ellilífeyris á milli 60 ára og 70 ára aldurs og er hann greiddur ævilangt.
Réttindi til ellilífeyris safnast upp á starfstíma sjóðfélagans með greiðslu iðgjalda til sjóðsins. Ekkert hámark eða lágmark er á þessum réttindum enda taka þau algerlega mið af inngreiddum iðgjöldum. Sjóðfélagar sjá sín réttindi á yfirlitum sem send eru tvisvar á ári en einnig er hægt að fylgjast með þeim á sjóðfélagavefnum hér á síðunni.
Réttindin eru verðtryggð en réttindatöflur sjóðsins miðast við núgildandi lýðfræðilegar forsendur og að sjóðurinn nái 3,5% raunávöxtun. Breytist þessar forsendur kann það að hafa áhrif á lífeyri.
Við útreikning réttinda er miðað við að taka ellilífeyris hefjist við 67 ára aldur. Heimilt er að fresta tökunni til 70 ára aldurs og hækka þá réttindin fyrir hvern mánuð sem frestað er. Á sama hátt er heimilt að flýta töku lífeyris til allt að 60 ára aldurs og lækka þá réttindin fyrir hvern mánuð sem lífeyristökunni er flýtt. Áhrif frestunar og flýting töku lífeyris sést í eftirfarandi töflu:
Heimilt er að skipta lífeyrisgreiðslum eða lífeyrisréttindum milli maka samkvæmt nánari reglum sem kveðið er á um í samþykktum sjóðsins (VII. kafli, grein 18.7).
Tenglar:

| Taka ellilífeyris hefst | Hækkun/lækkun fyrir hvern mánuð |
Aldur |
Samtals hækkun/lækkun |
| 60-61 ára | -0,38% | 60 | -44,64% |
| 61-62 ára |
-0,42% | 61 | -40,08% |
| 62-63 ára |
-0,47% | 62 | -35,04% |
| 63-64 ára | -0,52% | 63 | -29,40% |
| 64-65 ára | -0,57% | 64 | -23,16% |
| 65-66 ára | -0,64% | 65 | -16,32% |
| 66-67 ára | -0,72% | 66 | -8,64% |
| 67-68 ára | 0,66% | 68 | 7,92% |
| 68-69 ára | 0,75% | 69 | 16,92% |
| 69-70 ára | 0,85% | 70 | 27,12% |
Heimilt er að skipta lífeyrisgreiðslum eða lífeyrisréttindum milli maka samkvæmt nánari reglum sem kveðið er á um í samþykktum sjóðsins (VII. kafli, grein 18.7).
Tenglar:
- Umsókn um lífeyri
- Samþykktir sjóðsins, VII. kafli
- Lífeyrisreiknivél
- Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna