STAPI, lífeyrissjóður

Söfn Séreignardeildar Sjóðurinn hefur boðið upp á þrjú söfn í Séreignardeild. Í söfnunum hefur verið lögð áhersla á að fjárfesta í vel seljanlegum eignum

Ávöxtunarleiðir

Söfn Séreignardeildar
Sjóðurinn hefur boðið upp á þrjú söfn í Séreignardeild. Í söfnunum hefur verið lögð áhersla á að fjárfesta í vel seljanlegum eignum m.a. til að koma í veg fyrir að söfnin lentu í erfiðleikum ef innlausnir reyndust miklar. Einkum hefur verið fjárfest í ríkisskuldabréfum, skammtímabréfum, innlendum og erlendum verðbréfum. Söfnin eru gerð upp á markaðskröfu og hafa daglegt gengi.

Safn I er öruggara en Safn II og er fyrir þá sjóðfélaga, sem vilja tryggja sér jafna og stöðuga ávöxtun, með hóflegri áhættu.
Safn II er fyrir þá sjóðfélaga sem stefna að hærrri ávöxtun og vilja taka nokkra áhættu en áhættan er fyrst og fremst fólgin í því að
ávöxtun verðbréfanna í Safni II sveiflast meira en safn I.
Safn III er fyrir þá sjóðfélaga sem vilja örugga ávöxtun og er safnið ekki háð markaðssveiflum líkt og hin söfnin.

Upplýsingar um samsetningu og fjárfestingarstefnu safnanna má sjá á eftirfarandi síðum:
Safn I, Safn II, Safn III

Markmið um ávöxtun og áhættu



Ávöxtun séreignarsafnanna
Ávöxtun séreignarsafnanna undanfarið 1, 2 og 3 ár má sjá á síðunni  "Ávöxtun séreignar".

Safn I og Safn II eru ávöxtuð í markaðsverðbréfum. Mikilvægt er að hafa í huga að markaðsverðbréf sveiflast í verði, þau bæði hækka og lækka í verði frá einum tíma til annars. Það þýðir að slík söfn munu ekki hækka í hverjum mánuði – en þetta þýðir jafnframt að hægt er að nýta verðsveiflur til að ná fram bættri ávöxtun, sem á að geta gefið betri ávöxtun en innlánsreikningar til lengri tíma litið. Það hefur tekist bærilega vel á undanförnum árum. Safn III er eingöngu ávaxtað í innlánum. Þar eru sveiflurnar minni og taka einkum mið af því hver verðbólgan og vextir eru á hverjum tíma. Mikilvægt er að fólk hafi þennan mun í huga þegar söfn eru valin.

Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um samsvarandi ávöxtun í framtíð.


Flutt milli safna
Sjóðfélagar geta flutt sparnað sinn á milli safnanna, og tekur slíkt gildi við næstu mánaðamót eftir beiðni.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf